Fara í efni



Efling sjúkraþjálfun

Fagmennska - velferð - virðing

Markmið fyrirtækisins er að veita faglega og metnaðarfulla þjónustu í góðu starfsumhverfi þar sem við leggjum áherslu á einstaklingsmiðaða meðferð með áherslu á virka endurhæfingu til að hjálpa fólki að taka aukna ábyrgð til að bæta lífsgæði sín og líðan.

Við höfum gildin okkar að leiðarljósi en þau eru: Fagmennska, velferð og virðing.

Efling rekur tvær stofur á Akureyri, annars vegar í Krónunni, Hafnarstræti 97 og hins vegar í Kaupangi við Mýrarveg. Afgreiðslan okkar er í Krónunni, Hafnarstræti 97 á 3. hæð. Einnig fer sjúkraþjálfari frá Eflingu einu sinni í viku til Grenivíkur og sinnir sjúkraþjálfun þar í aðstöðu sem Efling hefur aðgang að.

Hjá okkur starfa 22 sjúkraþjálfarar sem sinna allir hefðbundinni sjúkraþjálfun en sumir hafa einnig sérhæft sig í stoðkerfisvandamálum, íþróttameiðslum og kvennaheilsu auk þess sem þeir hafa tekið fjölda námskeiða t.d. um sogæðameðferð, endurhæfingu eftir gerviliðaaðgerðir, endurhæfingu eftir axla- og hnéaðgerðir, endurhæfingu eftir höfuðhögg, hálsvandamál, sjúkraþjálfun barna o.fl. Sjúkraþjálfarar okkar bjóða auk þess upp á nálastungur, hlaupagreiningar auk ýmissa fræðsluerinda og vinnastaðaúttekta.

Sagan:

Efling sjúkraþjálfun ehf var stofnuð í des 1995 og tók til starfa í apríl 1996. Það voru þau Einar Einarsson, Sigrún Jónsdóttir og Stefán Ólafsson sem stofnuðu Eflingu en Þorleifur Stefánsson kom inn í félagið fljótlega eftir opnun. Efling hefur því sinnt sjúkraþjálfun í þrjá áratugi. Í fyrstu var stofan smá í sniðum með 3 sjúkraþjálfara en þeim fjölgaði fljótlega í 6 og var stöðin rekin í samstarfi við nokkra sérgreinalækna á 3. hæð í Hafnarstræti 97 á Akureyri. Síðar tók Efling alfarið við húsnæðinu og fjölgaði þá sjúkraþjálfurum. Árið 2018 stækkaði stöðin aftur þegar 4. hæðin var tekin í notkun og stækkaði síðan enn meira með tilkomu Kaupangs í janúar 2023.

Í dag er stöðin rekin í um 1300 fm húsnæði í Hafnarstræti og í Kaupangi og þar starfa að jafnaði 22 sjúkraþjálfarar auk annarra starfsmanna.

Framkvæmdastjóri Eflingar er Ásta Þorsteinsdóttir, sjúkraþjálfari og hefur hún gengt því starfi síðan í janúar 2017.


Hér má sjá gamla mynd af Sigrúnu og Stefáni við opnun Eflingar fyrir 30 árum.