
Þjálfun eftir meðgöngu
Sérhæfður hóptími sem ætlaður er konum sem eru að jafna sig eftir fæðingu. Meðganga og fæðing er líkamlega krefjandi ferli sem hefur umtalsverð áhrif á liðbönd, mjaðmagrind, grindarbotn, hrygg og kviðvöðva. Margar konur upplifa einkenni eins og verki í mjaðmagrind, veikleika í grindarbotni og kviðvöðvum, þvagleka og ýmis önnur einkenni fyrstu vikur eftir fæðingu.
Markmið þjálfunarinnar
- Styrkja kvið- og grindarbotnsvöðva
- Æfingar sem styðja við mjaðmagrind og hrygg — æfingar sem draga úr álagi á mjaðmagrind og styrkja vöðva umhverfis grind og hrygg.
- Hreyfistjórnun — þjálfun í réttri líkamsbeitingu við daglegar athafnir, svo sem við að lyfta og bera barn
- Fræðsla — upplýsingar um bataferli, einkenni sem þarfnast athygli og hvenær er öruggt að hefja frekari þjálfun
Um hópinn
Þjálfunin fer fram undir leiðsögn sjúkraþjálfara með þekkingu á endurhæfingu eftir fæðingu. Áhersla er lögð á að endurbyggja styrk og virkni grindarbotns- og kviðvöðva með skynsamlegum og öruggum hætti, í takt við náttúrulegt bataferli líkamans. Hópurinn skapar jafnframt félagsleg tengsl og hvetjandi umhverfi þar sem konur geta deilt reynslu og stutt hverja aðra.
- Tímar: Mánudagar og miðvikudagar kl. 11
- Staður: Krónan, Hafnarstræti 97, 4. hæð
- Leiðbeinendur: Andrea Þórey Hjaltadóttir og Audrey Freyja Clarke
- Verð: Það þarf beiðni í sjúkraþjálfun í hóptímana. Verð skv. gjaldskrá SÍ
- Skráning og upplýsingar: Senda tölvupóst á efling@eflingehf.is eða hringja í s. 461-2223
Fyrir hvern er hópurinn?
Hópurinn hentar konum á öllum stigum eftir fæðingu — hvort sem liðnar eru nokkrar vikur eða nokkrir mánuðir frá fæðingu. Við mælum með að konur leiti ráðgjafar sjúkraþjálfara áður en þær hefja mikla þjálfun eftir fæðingu, til að tryggja að þjálfunin sé í takt við líðan og bataferli hverrar og einnar.
