
Bakefling
Sérhæfðir hóptímar ætlaður einstaklingum sem glíma við bakverki. Hópurinn byggir á vísindalegum grunni þar sem markviss hreyfing og þjálfun eru meðal áhrifaríkustu leiða til að draga úr bakverkjum og fyrirbyggja að þeir komi aftur.
Um hópinn
Þjálfunin fer fram undir leiðsögn sjúkraþjálfara með góða þekkingu á bakverkjum og hreyfistjórnun. Áherslan er lögð á að kenna þátttakendum að skilja líkama sinn, nota hann rétt og byggja upp þann styrk og hreyfanleika sem dregur úr álagi á hrygginn. Hópurinn hentar bæði þeim sem eru að jafna sig eftir bráða bakverki og þeim sem hafa átt við langvarandi einkenni að stríða.
Markmið þjálfunarinnar
- Styrkja vöðva í baki, kvið og grindarbotni sem styðja við hrygginn
- Bæta hreyfimynstur og líkamsstöðu í daglegum athöfnum
- Draga úr verkjum og stirðleika
- Fræða þátttakendur um bakverki og fyrirbyggjandi ráðstafanir
- Auka öryggi og sjálfstraust í hreyfingu
Fyrir hvern er hópurinn?
Bakefling hentar einstaklingum sem glíma við verki í neðri eða efri hluta baks, hvort sem um er að ræða bráð eða langvarandi einkenni. Þátttaka í hópi gefur ekki einungis tækifæri til að þjálfa undir faglegri leiðsögn heldur skapar einnig félagslegt umhverfi þar sem þátttakendur styðja hver annan í leiðinni.
Við hvetjum þá sem hafa áhuga til að hafa samband við Eflingu sjúkraþjálfun til að fá frekari upplýsingar um hópinn og næstu tíma.
Netfang: efling@eflingehf.is
Sími: 461-2223
