
Persónuvernd
Persónuvernd
Hjá Eflingu leggjum við mikla áherslu á að fara vel með persónuupplýsingar og tryggja öryggi þeirra. Hér getur þú séð hvernig við söfnum, notum og verndum upplýsingar um þig.
Hvaða upplýsingar söfnum við?
Við söfnum aðeins þeim upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að veita þér þjónustu. Það geta verið almennar persónuupplýsingar og heilsufarsupplýsingar sem við meðhöndlum með sérstakri varúð skv. lögum.
Af hverju vinnum við með upplýsingarnar?
Við notum upplýsingarnar þínar til að:
- veita þér þjónustu
- uppfylla lagaskyldur
- halda utan um bókhald og rekstur
Við notum aldrei upplýsingar í öðrum tilgangi nema þú sért upplýst/ur um það.
Hversu lengi geymum við gögnin?
Við geymum upplýsingar aðeins eins lengi og þörf er á:
- Almenn gögn: yfirleitt í allt að 1 ár eftir að viðskiptum lýkur
- Bókhaldsgögn: í allt að 7 ár samkvæmt lögum
- Heilbrigðisupplýsingar: samkvæmt viðeigandi reglum
Deilum við upplýsingunum þínum?
Nei, við deilum ekki persónuupplýsingum með öðrum nema:
- með þínu samþykki
- eða ef lög krefjast þess
Hvernig verndum við gögnin?
Við leitumst við að nota öruggar, tæknilegar og skipulagslegar lausnir til að vernda upplýsingar, til dæmis með aðgangsstýringu og öruggu kerfi, til að koma í veg fyrir óheimilan aðgang eða misnotkun.
Réttindi þín
Þú átt rétt á að:
- fá upplýsingar um hvaða gögn við höfum um þig
- fá rangar upplýsingar leiðréttar
- óska eftir eyðingu gagna (þegar það á við)
- draga veitt samþykki þitt til baka
Ef þú hefur áhyggjur af meðferð gagna getur þú einnig leitað til Persónuverndar.
Hafa samband
Ef þú vilt fá upplýsingar um þín gögn þarftu að fylla út eyðublað og framvísa skilríkjum til að tryggja öryggi. Eyðublöð eru í afgreiðslu.
Af öryggisástæðum tökum við ekki við slíkum beiðnum í síma eða með tölvupósti.
Breytingar á stefnunni
Við kunnum að uppfæra þessa stefnu eftir þörfum. Nýjasta útgáfan er alltaf aðgengileg hér á vefsíðunni.
