
Þjónusta
Sjúkraþjálfarar hjá Eflingu bjóða upp á alla almenna sjúkraþjálfun auk sértækrar sjúkraþjálfunar. Við leggjum áherslu á faglega og persónulega þjónustu þar sem velferð skjólstæðingsins er í fyrirrúmi.
Almenn sjúkraþjálfun - er sjúkraþjálfun sem miðar að því að bæta hreyfigetu, draga úr verkjum og auka lífsgæði fólks á öllum aldri.
Sjúkraþjálfarar okkar hafa sérhæft sig á mörgum sviðum og verið duglegir að sækja námskeið til að viðhalda og bæta þekkingu sína, m.a. í
- Stoðkerfi (t.d. vandamálum frá baki, öxlum, mjöðmum, hnjám...)
- Íþróttasjúkraþjálfun - endurhæfing eftir meiðsli og forvarnir.
- Kvenheilsu - meðhöndlun á vandamálum tengd grindarbotni og mjaðmagrind, meðhöndlun á vandamálum fyrir og eftir meðgöngu o.fl.
- Barnasjúkraþjálfun - mat og þjálfun barna með hreyfiþroskavandamál.
- Hálsvandamálum og meðferð eftir höfuðhögg - Meðhöndlun, fræðsla og leiðbeiningar.
- Sjúkraþjálfun aldraðra - áhersla á styrk, jafnvægi og forvarnir gegn byltum.
- Sjúkraþjálfun eftir aðgerðir og slys - reyna að ná upp hreyfigetu, styrk og úthaldi og leiðrétta röng hreyfimynstur.
- Slitgigt og öðrum gigtarsjúkdómum.
- Sogæðameðferð - sérstakri meðferð við bjúgvandamálum, t.d. eftir krabbameinsmeðferð.
Að auki bjóðum við upp á:
- Hópþjálfun
- Æfingakort í tækjasal sem sjúkraþjálfari setur upp.
- Úttekt á vinnustöðum og námsskeið um líkamsbeitingu
- Fræðslufyrirlestra og ráðgjöf
- Hlaupagreiningar
- Vörur til sölu tengdar sjúkraþjálfun
