Fara í efni

Stoðkerfisefling

Stoðkerfið — sem nær til beina, vöðva, liðamóta, sina og bandvefs — sér um að halda líkamanum uppi, vernda líffæri og gerir okkur kleift að hreyfa okkur. Vandamál í stoðkerfinu geta komið fram á margan hátt; sem verkir, stirðleiki, skert hreyfigeta eða máttleysi, og hafa oft áhrif á daglegt líf og lífsgæði. Stoðkerfisefling er hóptími sem eflir stoðkerfið í heild sinni og tekur á öllum þeim þáttum sem þarf til að halda stoðkerfinu góðu.


Markmið þjálfunarinnar

  • Bæta og viðhalda vöðvastyrk
  • Bæta jafnvægi og samhæfingu
  • Styrkja bein
  • Auka úthald
  • Bæta hreyfanleika og liðleika


Um hópinn

Stoðkerfisefling fer fram undir leiðsögn sjúkraþjálfara með góða þekkingu á stoðkerfinu og þjálfun þess. Áhersla er lögð á faglega og árangursríka þjálfun í góðu umhverfi. Æfingar eru aðlagaðar að getu og þörfum þátttakenda. Hóptímarnir eru byggðir upp með velferð, öryggi og ánægju í huga auk þess sem þeir skapa jákvæða félagslega samveru í hvetjandi umhverfi.

  • Tímar: Mánudagar og miðvikudagar kl. 8
  • Staður: Krónan, Hafnarstræti 97, 4. hæð
  • Leiðbeinendur: Árni Björn Þórarinsson og Sævar Þór Sævarsson
  • Verð: Það þarf beiðni í sjúkraþjálfun í hóptímana. Verð skv. gjaldskrá SÍ
  • Skráning og upplýsingar: Senda tölvupóst á efling@eflingehf.is eða hringja í s. 461-2223


Fyrir hvern er hópurinn

Alla fullorðna sem eru að glíma við stoðkerfisvanda eða vilja fyrirbyggja hann og viðhalda góðu stoðkerfi.