Heilsuefling 65+
Hóptímar ætlaðir einstaklingum 65 ára og eldri. Áhersla er lögð á að auka styrk, jafnvægi, úthald og liðleika. Hreyfing er ein mikilvægasta forvörn gegn heilsubresti á efri árum og rannsóknir sýna að markviss þjálfun getur bætt heilsu auk þess að hafa góð áhrif á andlega líðan — óháð aldri eða líkamlegri getu.
Markmið þjálfunarinnar
- Bæta og viðhalda vöðvastyrk og hreyfanleika
- Bæta jafnvægi og samhæfingu til að draga úr byltuhættu
- Styrkja bein og minnka líkur á beinþynningu
- Auka úthald
- Auka sjálfstæði og lífsgæði í daglegum athöfnum
- Fyrirbyggja eða hægja á framgangi algengra aldurstengdra sjúkdóma
Um hópinn
Þjálfunin fer fram undir leiðsögn sjúkraþjálfara með góða þekkingu á þjálfun og endurhæfingu eldra fólks. Áhersla er lögð á öruggar og árangursríkar æfingar sem eru aðlagaðar að getu og þörfum hvers þátttakanda. Hóptímarnir eru byggðir upp með velferð, öryggi og gleði í huga auk þess sem þeir auka jákvæða félagslega samveru í hvetjandi umhverfi.
- Tími: Þriðjudagar og fimmtudagar kl. 15:30 og 16:35
- Staður: Kaupangur við Mýrarveg, 2. hæð
- Leiðbeinendur: Ásta Þorsteinsdóttir, Guðrún Balvinsdóttir, Hannes Bjarni Hannesson, Rakel Róbertsdóttir og Vébjörn Fivelstad
- Verð: Það þarf beiðni í sjúkraþjálfun í hóptímana. Verð skv. gjaldskrá SÍ
- Skráning og upplýsingar: Senda má tölvupóst á efling@eflingehf.is eða hringja í s. 461-2223
Fyrir hvern er hópurinn?
Heilsuefling 65+ hentar einstaklingum sem eru komnir yfir sextugt — hvort sem þátttakandi er líkamlega virkur og vill viðhalda heilsu sinni eða er að hefja þjálfun að nýju eftir veikindi, meiðsli eða skurðaðgerð. Þjálfunin er sniðin að hverjum og einum og tekur mið af líðan, getu og markmiðum þátttakanda.
