
Slitgigtarhópur
Slitgigt er einn algengasti liðsjúkdómurinn og einkennist af niðurbroti brjósks í liðum sem leiðir til verkja, stirðleika og skertrar hreyfigetu. Sjúkdómurinn hefur áhrif á lífsgæði og getur dregið verulega úr þeim. Hjá Eflingu sjúkraþjálfun bjóðum við upp á sérhæfða þjálfun og meðferð sem miðar að því að draga úr einkennum slitgigtar, bæta hreyfigetu og styrkja þá vöðva sem styðja við liðina.
Hvað felst í slitgigtarþjálfun?
Markviss þjálfun er ein áhrifaríkasta leiðin til að meðhöndla slitgigt og hafa vísindalegar rannsóknir ítrekað sýnt fram á jákvæð áhrif hennar á bæði verki og hreyfigetu. Meðferðin er einstaklingsmiðuð og tekur mið af líðan, getu og markmiðum hvers skjólstæðings.
Þjálfunin byggir á:
- Styrktarþjálfun — uppbygging vöðvastyrks í kringum liðina til að létta álag og auka stöðugleika
- Liðleikaþjálfun — bæta eða viðhalda hreyfigetu liða
- Jafnvægis- og samhæfingarþjálfun — til að minnka áhættu á byltu og bæta hreyfistjórn
- Fræðsla og leiðbeiningar — um sjálfsþjálfun, hreyfimynstur og líkamsbeitingu í daglegu lífi
Um hópinn
Þjálfunin fer fram undir leiðsögn sjúkraþjálfara með góða þekkingu á slitgigt og endurhæfingu fólks með slitgigt. Áhersla er á öruggar og árangursríkar æfingar sem eru aðlagaðar að getu og þörfum hvers og eins. Hóptímarnir eru byggðir upp með velferð, öryggi og gleði í huga auk þess sem þeir skapa jákvæða félagslega samveru í hvetjandi umhverfi.
- Tímar: Þriðjudagar og föstudagar kl. 12:05
- Staður: Krónan, Hafnarstræti 97, 4. hæð
- Leiðbeinendur: Audrey Freyja Clarke, Elín Rós Jónasdóttir, Hannes Bjarni Hannesson, Helgi Steinar Andrésson
- Verð: Það þarf beiðni í sjúkraþjálfun í hóptímana. Verð skv. gjaldskrá SÍ
- Skráning og upplýsingar: Senda tölvupóst á efling@eflingehf.is eða hringja í s. 461-2223.
Fyrir hvern er þjálfunin?
Slitgigtarhópurinn hentar einstaklingum með slitgigt í hné eða mjöðm eða hafa farið í liðskipti á hné eða mjöðm. Hann hentar einstaklingum á öllum stigum sjúkdómsins — hvort sem einkenni eru væg eða umtalsverð. Ef gripið er snemma inn í framgang sjúkdómsins þá getur það hægt verulega á framgangi hans og dregið úr þörf fyrir lyfjameðferð eða skurðaðgerð.
