Fara í efni

Kvennaleikfimi

Mjúk alhliða þjálfun fyrir konur. Í tímunum er lögð áhersla á að auka vöðvastyrk og vöðvastjórn, liðleika, úthald, samhæfingu og jafnvægi.


Markmið þjálfunarinnar

  • Bæta og viðhalda styrk og hreyfanleka — markvissar æfingar til að styrkja og samhæfa vöðvahópa
  • Bæta hreyfistjórn og samhæfingu
  • Auka liðleika og úthald
  • Bæta jafnvægi
  • Fræðsla


Um hópinn

Þjálfunin fer fram undir leiðsögn sjúkraþjálfara með góða þekkingu á þjálfun kvenna. Kvennaleikfimin hentar konum á öllum lífsskeiðum — ungum sem eldri. Áhersla er lögð á góðar og árangursríkar æfingar sem henta konum. Hóptímarnir eru byggðir upp með velferð, öryggi og ánægju í huga auk þess sem þeir skapa jákvæða félagslega samveru í góðu umhverfi.

  • Tímar: Þriðjudagar og fimmtudagar kl. 11
  • Staður: Krónan, Hafnarstræti 97, 4. hæð
  • Leiðbeinendur: Audrey Freyja Clarke, Elín Rós Jónasdóttir, Iðunn Elfa Bolladóttir og Rósa Tryggvadóttir
  • Verð: Það þarf beiðni í sjúkraþjálfun í hóptímana. Verð skv. gjaldskrá SÍ
  • Skráning og upplýsingar: Senda tölvupóst á efling@eflingehf.is eða hringja í s. 461-2223