Fara í efni

Miðjuefling

Sérhæfðir hóptímar fyrir konur þar sem áhersla er lögð á miðju líkamans öndun og grindarbotn. Í tímunum er auk þess lögð áhersla á að auka vöðvastyrk og vöðvastjórn, liðleika, úthald, samhæfingu og jafnvægi.


Markmið þjálfunarinnar

  • Bæta og viðhalda vöðvastyrk
  • Bæta hreyfistjórn og samhæfingu
  • Auka liðleika og úthald
  • Bæta jafnvægi
  • Fræðsla


Um hópinn

Þjálfunin fer fram undir leiðsögn sjúkraþjálfara með góða þekkingu á þjálfun kvenna. Miðjuefling hentar konum á öllum lífsskeiðum — ungum sem eldri. Áhersla er lögð á góðar og árangursríkar æfingar til að styrkja miðju líkamans. Hóptímarnir eru byggðir upp með velferð, öryggi og ánægju í huga auk þess sem þeir skapa jákvæða félagslega samveru í góðu umhverfi.

  • Tímar: Mánudaga og miðvikudaga kl. 12
  • Staður: Kaupangur við Mýrarveg, 2. hæð
  • Leiðbeinendur: Soffía Einarsdóttir og Þóra Hlynsdóttir
  • Verð: Það þarf beiðni í sjúkraþjálfun í hóptímana. Verð skv. gjaldskrá SÍ
  • Skráning og upplýsingar: Senda tölvupóst á efling@eflingehf.is eða hringja í s. 461-2223