Efling 30 ára
Birt

Efling sjúkraþjálfun er 30 ára — og var viðskiptavinum boðið upp á súkkulaðitertu og ávexti í tilefni dagsins. Einnig opnuðum við nýja heimasíðu og kynntum nýtt lógó í tilefni tímamótanna.
Stöðin var stofnuð í desember 1995 af Einari Einarssyni, Sigrúnu Jónsdóttur og Stefáni Ólafssyni, og tók til starfa í apríl 1996. Í fyrstu voru þrír sjúkraþjálfarar á staðnum. Í dag eru þeir 25 og stofurnar tvær — í Krónunni og í Kaupangi — samtals í um 1.300 fermetrum. Stefán er enn starfandi hjá okkur en Einar hætti fyrir mörgum árum og Sigrún lét af störfum um mitt ár 2024 þegar hún fór á eftirlaun.
Við þökkum skjólstæðingum okkar traustið í þessi 30 ár og starfsfólkinu metnaðinn sem hefur gert Eflingu að því sem hún er í dag. Við hlökkum til næstu 30 ára með ykkur.

